Við hliðið fræga í Auschwitz „Arbeit macht frei“.

„Áhrifaríkt og ógleymanlegt“ – nemendur FVA í sögu heimsóttu Auschwitz

Í Fjölbrautaskóla Vesturlands eru ýmis spennandi tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum alþjóðlegum verkefnum. Á hverju ári er samstarf kennara og nemenda í gegnum Erasmus+ (menntaáætlun Evrópusambandsins) og í vor fer starfsmannahópurinn til Ítalíu til að kynna sér skólahald Rómverja. Einnig er hefð er fyrir því í FVA að heimsækja bæði Pólland og Þýskaland innan námsáfanga í skólanum.