Fréttir

true

Samgöngustofa í átak vegna minnkandi notkunar bílbelta

Ungmenni á aldrinum 18-24 ára velja í auknum mæli að sleppa því að nota bílbelti. Fjórtán sinnum meiri líkur eru á að þau látist í umferðarslysum án notkunar bílbelta. „Mikilvægt er að ná til þessa hóps með öllum leiðum og stuðla að viðhorfsbreytingu,“ segir Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu. Samgöngustofa, í samstarfi…Lesa meira

true

Vesturlandsmótið í skák fór fram í FSN

Taflfélag Snæfellsbæjar hefur staðið fyrir hinum ýmsu skákviðburðum og keppnum undanfarin misseri. Mikil gróska hefur verið í skákinni í Ólafsvík og Grundarfirði eftir að Sigurður Scheving fór af stað með skipulagðar æfingar fyrir unga sem aldna en hann kom Taflfélagi Snæfellsbæjar á legg haustið 2022. Síðan hefur mikil starfsemi verið í félaginu og iðkendum alltaf…Lesa meira

true

Brýna sveitarstjórnarfólk til að ástunda fagleg vinnubrögð

Aðalfundur Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu, fór fram á Akureyri og í streymi 26. mars sl. Farið var yfir starfsemi félagsins á liðnu ári og helstu verkefni fram undan. Á fundinum fóru fram stjórnarskipti. Arna Jakobína Björnsdóttir fór yfir skýrslu stjórnar og kom fram í ræðu hennar að starf félagsins einkenndist af öflugri réttindabaráttu, markvissri…Lesa meira

true

Björgunarsveitir í fjölbreyttum verkefnum á vesturhluta landsins

Björgunarsveitir um vestanvert landið sinntu í gær fjölmörgum verkefnum, en gul viðvörun var í gildi vegna hvassviðris. Að frátöldum vegalokunum, sem björgunarsveitir sinntu fyrir Vegagerðina, var eitthvað um útköll vegna foktjóns. Á Akranesi var björgunarfélagið kallað út í tvígang vegna foktjóns við Akurgerði. Þá var björgunarsveitin Ægir í Garði kölluð út vegna foktjóns sem og…Lesa meira

true

Sameinast við ysta sæ

Sveitarfélögin Árneshreppur og Kaldrananeshreppur á Ströndum verða sameinuð í eitt. Íbúar beggja sveitarfélaganna samþykktu það í íbúakosningu sem lauk um helgina. 56,8% íbúa í Árneshreppi voru fylgjandi sameiningu en 73,21% íbúa í Kaldrananeshreppi.Lesa meira

true

Blikar reyndust Borgnesingum sterkari

Fyrsti leikur Breiðabliks og Skallagríms í úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta, um laust sæti í Bónusdeildinni, var spilaður í gær í Kópavogi. Leikurinn var í höndum heimamanna allan tímann sem unnu allar lotur leiksins með talsverðum mun. Lokatölur urðu 118 stig Breiðabliks gegn 82 stigum Skallagríms. Þeir Milorad Sedlarevic og Matt Treacy voru atkvæðamestir…Lesa meira

true

Siggeir Pétursson kaupir Sæferðir af Eimskip

Eimskip hefur selt dótturfélag sitt, Sæferðir ehf., ásamt skemmtiferðaskipinu Særúnu. Með sölunni lýkur þátttöku Eimskips í rekstri félagsins, en það hefur á undanförnum árum sinnt fjölbreyttum ferðaþjónustutengdum verkefnum í Stykkishólmi og á Breiðafirði, meðal annars rekstri Baldurs. Særún er tvíbytna sem tekur allt að 115 farþega og er útbúin veitingasal með sæti fyrir 98 manns.…Lesa meira

true

Varað við suðaustan hríðarveðri síðdegis og í kvöld

Frá því síðdegis í dag og fram yfir miðnætti er gul viðvörun fyrir allt vestanvert landið vegna suðaustan storms og snjókomu. Það verður suðaustan 18-25 m/s með snjókomu og skafrenningi, einkum á fjallvegum. Hvassast á Snæfellsnesi, Kjalarnesi og við Hafnarfjall með vindhviður að 40 m/s. Samgöngutruflanir eru líklegar. Í hugleiðingum veðurfræðings Vegagerðarinnar segir að það…Lesa meira

true

Styrmir valinn efnilegastur ungra leikmanna

Í gær stóð Körfuknattleikssamband Íslands fyrir árlegri verðlaunahátíð sinni fyrir úrvals- og fyrstu deildir. Þar voru leikmenn, þjálfarar og dómarar verðlaunaðir fyrir frammistöðu sína í deildarkeppni sem lauk nýverið. Meðal helstu úrslit þá voru Þórir Guðmundur Þorbjarnarson leikmaður KR og Danielle Rodriguez í Njarðvík útnefnd bestu leikmenn úrvalsdeildar karla og kvenna. Meðal annarra viðurkenninga var…Lesa meira

true

Opnar nýja hringrásarverslun á Akranesi

Sverrir Mar Smárason, þrítugur borinn og barnfæddur Akurnesingur, ætlar að hefja rekstur á hringrásarverslun í rýminu við hlið Bónus á Smiðjuvöllum 32 á Akranesi. Hann stefnir á að opna verslunina Bás33 miðvikudaginn 8. apríl nk. Blaðamaður Skessuhorns hitti Sverri, þar sem hann var í óða önn að skipuleggja húsnæðið og koma innréttingum fyrir, og vildi…Lesa meira