Sameinast við ysta sæ

Sveitarfélögin Árneshreppur og Kaldrananeshreppur á Ströndum verða sameinuð í eitt. Íbúar beggja sveitarfélaganna samþykktu það í íbúakosningu sem lauk um helgina. 56,8% íbúa í Árneshreppi voru fylgjandi sameiningu en 73,21% íbúa í Kaldrananeshreppi.