Björgunarfélag Akraness var í tvígang í gær kallað út vegna þess að klæðningar voru að losna af húsum. Í fyrra útkallinu vegna þessa húss við Akurgerði 13.

Björgunarsveitir í fjölbreyttum verkefnum á vesturhluta landsins

Björgunarsveitir um vestanvert landið sinntu í gær fjölmörgum verkefnum, en gul viðvörun var í gildi vegna hvassviðris. Að frátöldum vegalokunum, sem björgunarsveitir sinntu fyrir Vegagerðina, var eitthvað um útköll vegna foktjóns. Á Akranesi var björgunarfélagið kallað út í tvígang vegna foktjóns við Akurgerði. Þá var björgunarsveitin Ægir í Garði kölluð út vegna foktjóns sem og Þorbjörn í Grindavík. Vegna ófærðar aðstoðaði björgunarsveitin Klakkur í Grundarfirði sjúkrabíl. Björgunarsveitin fylgdi svo sjúkrabílnum yfir Vatnaleið þar sem færðin var orðin betri.

Björgunarsveitin Blakkur á Patreksfirði og Bróðurhöndin á Rauðasandi voru kallaðar út vegna lítillar rútu í Raknadal innarlega í Patreksfirði sem þar var í vandræðum en lítið snjóflóð hafði fallið á veginn og lokað honum. Bróðurhöndin fór á snjóbíl og sótti fólkið upp úr miðnætti, en rútan snéri við og hélt til baka. Þegar þessu verki lauk sinnti Blakkur flutningi á heilbrigðisstarfsfólki á Patreksfirði á þriðja tímanum í nótt.

Björgunarsveitin Ingunn á Laugarvatni og Hjálparsveitin Tintron í Grímsnesinu fóru til aðstoðar ferðalöngum á Þingvallavegi og í Grafningi. Þar voru nokkrir bílar fastir og var fólkinu komið í gistingu á Selfossi en einhverja bíla þurfti að skilja eftir.

Við Flateyrar afleggjara voru ferðalangar í vandræðum og fóru þrír björgunarmenn á einum björgunarsveitarbíl frá Björgunarfélagi Ísafjarðar til aðstoðar. Einn var í fasta bílnum sem var fluttur í björgunarsveitarbílinn og til Ísafjarðar en bíllinn sjálfur var útaf vegi og bíður dagsins að koma honum upp á veg.