Klesst andlit hafa sést í auglýsingaplássum og á samfélagsmiðlum. Hér er Patrekur Jamie.

Samgöngustofa í átak vegna minnkandi notkunar bílbelta

Ungmenni á aldrinum 18-24 ára velja í auknum mæli að sleppa því að nota bílbelti. Fjórtán sinnum meiri líkur eru á að þau látist í umferðarslysum án notkunar bílbelta. „Mikilvægt er að ná til þessa hóps með öllum leiðum og stuðla að viðhorfsbreytingu,“ segir Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu.