Athafnamaðurinn Sverrir Mar Smárason. Texti og myndir: ÓHK

Opnar nýja hringrásarverslun á Akranesi

Sverrir Mar Smárason, þrítugur borinn og barnfæddur Akurnesingur, ætlar að hefja rekstur á hringrásarverslun í rýminu við hlið Bónus á Smiðjuvöllum 32 á Akranesi. Hann stefnir á að opna verslunina Bás33 miðvikudaginn 8. apríl nk. Blaðamaður Skessuhorns hitti Sverri, þar sem hann var í óða önn að skipuleggja húsnæðið og koma innréttingum fyrir, og vildi fræðast um stórhuga áætlanir þessa atorkusama unga manns. „Þetta er djörf ákvörðun, en það góða við þetta er að ég þarf ekki að skuldsetja mig mikið. Ég kosta uppsetninguna og greiði leigu fyrir þessa 103 fermetra. Ég er núna að setja hér upp 71 leigusvæði; slár með herðatrjám fyrir fatnað og bása sem eru þá stærri einingar með tveimur hillum, sem henta vel fyrir hluti eins og heimilisvörur og barnadót. Svo verður hérna leikhorn fyrir börn og kaffi í boði fyrir viðskiptavini.“

Notað verður nýtt á nýju heimili

Hringrásarverslun er verslun þar sem hægt er að kaupa og selja frá sér notaða og nýja hluti eins og fatnað, skó, barnaleikföng eða heimilisvörur. „Hver sem er getur leigt bás og selt ný eða notuð föt til að rýma til í fataskápnum fyrir nýjum fötum. Fólk getur tekið til í skápunum heima hjá sér og losað sig við það hér í stað þess að safna miklu upp heima fyrir. Í megin atriðum snýst þetta um að notað verði nýtt á nýju heimili,“ segir Sverrir. „Þetta er til dæmis flott fyrir fjölskyldur með börn sem vaxa fljótt upp úr fötunum. Föt og skór vilja gjarnan safnast upp hjá fólki og stundum sé ég fatnað með upphaflega verðmiðanum á í búðum sem þessum á Reykjavíkursvæðinu. Íslendingar eru að verða mjög meðvitaðir og áhugasamir um betri nýtingu á alls kyns hlutum sem tilheyra nútíma fjölskyldulífi.“

Hvernig hugmyndin varð til

„Hugmyndin varð til í samræðum við Helgu Fjólu, fyrrverandi kærustu mína, þannig að ég á ekki þessa hugmynd einn. Upphaflega kemur fyrirmyndin að þessu viðskiptamódeli frá Loppe í Danmörku, en Loppa í Reykjavík er dæmi um slíka verslun. Það má segja að starfsemi Rauða krossins og Búkollu, sem eiga sér mun lengri sögu sé í raun byggð á þessari hugmyndafræði, en þetta eru allt þjónustuaðilar sem ég sjálfur átti viðskipti við þegar ég bjó í Reykjavík um tíma. Ég sé líka fyrir mér að verslun af þessu tagi sem ég er að koma á fót geti verið ávinningur fyrir Rauða krossinn og Búkollu, því þessir þjónustustaðir eiga orðið erfitt með að taka við sífellt meiri fatnaði vegna plássleysis. Þá gætu verslanir eins og t.d. Nína eða Bjarg notið góðs af þessu líka, því fólk sem rýmir til heima hjá sér og selur fatnað og heimilisvörur hjá mér, fær greitt fyrir sína vöru og getur þá keypt nýja vöru fyrir þá peninga hjá þessum verslunum. Þannig virkar þessi hringrás í grunninn og margir hafa hag af þessari þjónustu þegar upp er staðið.“

Undirbúningur var í gangi í síðustu viku fyrir opnun á Bás33. Meðal annars þurfti að smíða innréttingar.

Hefðbundin og lúxus þjónusta

„Það er gaman að minnast á það, að annars vegar er ég að bjóða upp á hefðbundna bása þar sem leigjandinn skráir sjálfur inn vöruna, setur hana upp og tekur niður eftir þörfum. Þú bókar bás, velur þér básategund, fullorðins,- eða barnabás/barnaslá í 1, 2, 3 eða 4 vikur. Þú velur upphafsdag leigu og hvaða bás þú vilt. Næst fyllir þú út persónuupplýsingar og greiðir. Þetta getur þú gert allt rafrænt inni á heimasíðu verslunarinnar bas33.is. Þú færð sendan tölvupóst með upplýsingum um það hvernig þú skráir þig inn á „mínar síður“ Hins vegar er í boði það sem ég kalla lúxusþjónustu. Þá sé ég um að skrá inn vöruna og sé um bás leigjandans frá a-ö. Hann þarf ekki annað en að skutla vörunni til mín. Við setjum verðmiða og þjófavarnir (yfir 2.500kr) á vörurnar, komum þeim snyrtilega fyrir á básnum, fyllum reglulega á básinn, tökum til daglega, tökum niður básinn í lok leigutíma, pökkum vörum og geymum í allt að sjö daga án gjaldtöku. Ef viðkomandi hirðir ekki um að sækja sína vöru að loknum leigutíma þá fer ég með hana í Búkollu eða Rauða krossinn. Það virðist vera mikil vitundarvakning á Íslandi um mikilvægi þess að endurnýta hlutina sína og ég tel þetta vera framtíðina,“ segir Sverrir að lokum.