Varað við suðaustan hríðarveðri síðdegis og í kvöld

Frá því síðdegis í dag og fram yfir miðnætti er gul viðvörun fyrir allt vestanvert landið vegna suðaustan storms og snjókomu. Það verður suðaustan 18-25 m/s með snjókomu og skafrenningi, einkum á fjallvegum. Hvassast á Snæfellsnesi, Kjalarnesi og við Hafnarfjall með vindhviður að 40 m/s. Samgöngutruflanir eru líklegar. Í hugleiðingum veðurfræðings Vegagerðarinnar segir að það verði blint og erfið akstursskilyrði á Reykjanesbraut, Kjalarnesi og Hellisheiði eftir kl. 16 í dag, en síðar færist styrkur lægðarinnar til norðurs og verður þá hvasst á Snæfellsnesi. Rigning eða slydda skömmu síðar og skyggni batnar þá heldur, en hviður yfir 35 m/s við Hafnarfjall og á Kjalarnesi. Snjóar áfram á Hellisheiði og í Þrengslum. Einnig verður hríð á fjallvegum norðvestantil á landinu í kvöld. Það lægir og styttir upp suðvestanlands fyrir miðnætti.