Ánægðir ferðamenn bragða á skelfiski um borð í Særúnu. Ljósm. mm

Siggeir Pétursson kaupir Sæferðir af Eimskip

Eimskip hefur selt dótturfélag sitt, Sæferðir ehf., ásamt skemmtiferðaskipinu Særúnu. Með sölunni lýkur þátttöku Eimskips í rekstri félagsins, en það hefur á undanförnum árum sinnt fjölbreyttum ferðaþjónustutengdum verkefnum í Stykkishólmi og á Breiðafirði, meðal annars rekstri Baldurs. Særún er tvíbytna sem tekur allt að 115 farþega og er útbúin veitingasal með sæti fyrir 98 manns. Undanfarin ár hefur Særún siglt skemmtisiglingar um Breiðafjörð þar sem gestir hafa notið fugla- og náttúruskoðunar í eyjaklasanum og fengið að bragða á nýveiddum skelfiski. Nýr eigandi, Siggeir Pétursson, hyggst halda rekstri félagsins áfram í Stykkishólmi og bjóða upp á sambærilegar ferðir í anda þeirrar starfsemi sem Sæferðir hafa byggt upp.