Formannaskipti: Arna Jakobína og Hulda Guðmundsdóttir.

Brýna sveitarstjórnarfólk til að ástunda fagleg vinnubrögð

Aðalfundur Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu, fór fram á Akureyri og í streymi 26. mars sl. Farið var yfir starfsemi félagsins á liðnu ári og helstu verkefni fram undan. Á fundinum fóru fram stjórnarskipti. Arna Jakobína Björnsdóttir fór yfir skýrslu stjórnar og kom fram í ræðu hennar að starf félagsins einkenndist af öflugri réttindabaráttu, markvissri þjónustu og áframhaldandi eflingu félagsins. Í lokaorðum sínum lagði hún áherslu á mikilvægi samstöðu og að félagið væri fyrir félagsfólkið: „Stéttarfélag er fólkið sjálft – samstaða þess og vilji til að standa saman þegar á reynir. Ég er ánægð með það sem hefur áunnist og óska félaginu og þeim sem taka við alls hins besta í framtíðinni.“ Hulda Guðmundsdóttir nýr formaður Kjalar sleit fundi og sagði: ,,Ég hlakka mikið til að taka þetta hlutverk að mér, vinna með ykkur og halda áfram að byggja upp sterkt og öflugt stéttarfélag fyrir Kjalar fólk.“

Brýna sveitarstjórnarfólk til að ástunda fagleg vinnubrögð - Skessuhorn