Blikar reyndust Borgnesingum sterkari

Fyrsti leikur Breiðabliks og Skallagríms í úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta, um laust sæti í Bónusdeildinni, var spilaður í gær í Kópavogi. Leikurinn var í höndum heimamanna allan tímann sem unnu allar lotur leiksins með talsverðum mun. Lokatölur urðu 118 stig Breiðabliks gegn 82 stigum Skallagríms.