Fréttir

true

Inga vill fjölga kennsludögum í grunnskólum

„Við erum ekki að standa okkur nógu vel þegar kemur að menntun barna okkar,“ segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra í minnisblaði sem hún hefur lagt fram í ríkisstjórninni. „Við borgum meira en kennum og uppskerum minna en þær þjóðir sem við berum okkur saman við. Þessu vil ég snúa við og skoða m.a. fjölgun…Lesa meira

true

Mikil uppbygging við hafnarmannvirki með vorinu

Með vorinu hefjast framkvæmdir við Norðurgarð á hafnarsvæði Grundarfjarðarbæjar. Verkefnið felst í því að færa út grjótvörn og stækka „krikann“ upp við Norðurgarð með það fyrir augum að rýma fyrir aðkomu á landi – að og frá Norðurgarði. Framkvæmdin er kostuð af hafnarsjóði Grundarfjarðarhafnar, með þátttöku ríkisins á grunni samgönguáætlunar. Þetta er megin framkvæmd hafnarinnar…Lesa meira

true

Atvinnuleysi er að aukast

Hagstofan metur að samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar hafi 17.000 verið atvinnulausir í febrúarmánuði hér á landi. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 7,1%, hlutfall starfandi var 75% og atvinnuþátttaka 80,8%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 0,4 prósentustig á milli janúar og febrúar, hlutfall starfandi lækkaði um 0,8 prósentustig og atvinnuþátttaka minnkaði um 0,6 prósentustig.Lesa meira

true

Samgöngustofa í átak vegna minnkandi notkunar bílbelta

Ungmenni á aldrinum 18-24 ára velja í auknum mæli að sleppa því að nota bílbelti. Fjórtán sinnum meiri líkur eru á að þau látist í umferðarslysum án notkunar bílbelta. „Mikilvægt er að ná til þessa hóps með öllum leiðum og stuðla að viðhorfsbreytingu,“ segir Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu. Samgöngustofa, í samstarfi…Lesa meira

true

Vesturlandsmótið í skák fór fram í FSN

Taflfélag Snæfellsbæjar hefur staðið fyrir hinum ýmsu skákviðburðum og keppnum undanfarin misseri. Mikil gróska hefur verið í skákinni í Ólafsvík og Grundarfirði eftir að Sigurður Scheving fór af stað með skipulagðar æfingar fyrir unga sem aldna en hann kom Taflfélagi Snæfellsbæjar á legg haustið 2022. Síðan hefur mikil starfsemi verið í félaginu og iðkendum alltaf…Lesa meira

true

Brýna sveitarstjórnarfólk til að ástunda fagleg vinnubrögð

Aðalfundur Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu, fór fram á Akureyri og í streymi 26. mars sl. Farið var yfir starfsemi félagsins á liðnu ári og helstu verkefni fram undan. Á fundinum fóru fram stjórnarskipti. Arna Jakobína Björnsdóttir fór yfir skýrslu stjórnar og kom fram í ræðu hennar að starf félagsins einkenndist af öflugri réttindabaráttu, markvissri…Lesa meira

true

Björgunarsveitir í fjölbreyttum verkefnum á vesturhluta landsins

Björgunarsveitir um vestanvert landið sinntu í gær fjölmörgum verkefnum, en gul viðvörun var í gildi vegna hvassviðris. Að frátöldum vegalokunum, sem björgunarsveitir sinntu fyrir Vegagerðina, var eitthvað um útköll vegna foktjóns. Á Akranesi var björgunarfélagið kallað út í tvígang vegna foktjóns við Akurgerði. Þá var björgunarsveitin Ægir í Garði kölluð út vegna foktjóns sem og…Lesa meira

true

Sameinast við ysta sæ

Sveitarfélögin Árneshreppur og Kaldrananeshreppur á Ströndum verða sameinuð í eitt. Íbúar beggja sveitarfélaganna samþykktu það í íbúakosningu sem lauk um helgina. 56,8% íbúa í Árneshreppi voru fylgjandi sameiningu en 73,21% íbúa í Kaldrananeshreppi.Lesa meira

true

Blikar reyndust Borgnesingum sterkari

Fyrsti leikur Breiðabliks og Skallagríms í úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta, um laust sæti í Bónusdeildinni, var spilaður í gær í Kópavogi. Leikurinn var í höndum heimamanna allan tímann sem unnu allar lotur leiksins með talsverðum mun. Lokatölur urðu 118 stig Breiðabliks gegn 82 stigum Skallagríms. Þeir Milorad Sedlarevic og Matt Treacy voru atkvæðamestir…Lesa meira

true

Siggeir Pétursson kaupir Sæferðir af Eimskip

Eimskip hefur selt dótturfélag sitt, Sæferðir ehf., ásamt skemmtiferðaskipinu Særúnu. Með sölunni lýkur þátttöku Eimskips í rekstri félagsins, en það hefur á undanförnum árum sinnt fjölbreyttum ferðaþjónustutengdum verkefnum í Stykkishólmi og á Breiðafirði, meðal annars rekstri Baldurs. Særún er tvíbytna sem tekur allt að 115 farþega og er útbúin veitingasal með sæti fyrir 98 manns.…Lesa meira