
Inga vill fjölga kennsludögum í grunnskólum
„Við erum ekki að standa okkur nógu vel þegar kemur að menntun barna okkar,“ segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra í minnisblaði sem hún hefur lagt fram í ríkisstjórninni. „Við borgum meira en kennum og uppskerum minna en þær þjóðir sem við berum okkur saman við. Þessu vil ég snúa við og skoða m.a. fjölgun kennsludaga með sveitarfélögum og skólasamfélaginu.“ Fram kemur í minnisblaðinu að fjöldi kennsludaga og kennslustunda í grunnskólum á Íslandi er einn sá minnsti í Evrópu. Á sama tíma eru útgjöld á hvern nemanda þau hæstu innan OECD en árangur nemenda í íslenskum grunnskólum er langt undir meðaltali OECD í PISA-rannsókninni.