Hafnarmannvirki í Grundarfirði. Ljósm. Grundarfjarðarbær.

Mikil uppbygging við hafnarmannvirki með vorinu

Með vorinu hefjast framkvæmdir við Norðurgarð á hafnarsvæði Grundarfjarðarbæjar. Verkefnið felst í því að færa út grjótvörn og stækka „krikann“ upp við Norðurgarð með það fyrir augum að rýma fyrir aðkomu á landi – að og frá Norðurgarði. Framkvæmdin er kostuð af hafnarsjóði Grundarfjarðarhafnar, með þátttöku ríkisins á grunni samgönguáætlunar. Þetta er megin framkvæmd hafnarinnar í ár.