Fréttir

true

Júlíana er alltaf með mér

„Þessi hátíð hefur gefið lífi mínu tilgang,“ segir athafnakonan Gréta Sig Bjargardóttir í Stykkishólmi sem fékk þá hugmynd fyrir 14 árum að efna til bóka- og söguhátíðar í Stykkishólmi. Þrettánda Júlíönuhátíðin verður haldin í Stykkishólmi 19. til 21. mars en hátíðin er ein metnaðarfyllsta menningarhátíð á Vesturlandi og lifir eingöngu á frjálsum framlögum og styrkjum.…Lesa meira

true

Styrkja kaup á björgunar- og skyndihjálparbúnaði

Fulltrúar Rauða kross deildarinnar í Dölum og Reykhólahreppi komu í síðustu viku færandi hendi og afhentu Bjarka Þorsteinssyni sveitarstjóra og Ísak Sigfússyni lýðheilsufulltrúa Dalabyggðar höfðinglegan styrk frá félaginu. Hann mun renna til kaupa á björgunar og/eða skyndihjálparbúnaði í nýju Íþróttamiðstöðina í Búðardal. „Það er ómetanlegt að finna þann stuðning sem uppbygging Íþróttamiðstöðvarinnar nýtur í samfélaginu…Lesa meira

true

Hundamálið verður áfram til meðferðar í stjórnkerfinu

Á dögunum kom fram að Úrskurðarnefnd auðlinda- og umhverfismála ógilti bann Akraneskaupstðar í máli tiltekins íbúa á Akranesi við hundahaldi, þar sem viðkomandi var bannað hundahald í sveitarfélaginu vegna atviks sem átti sér stað 8. ágúst á síðasta ári. Nú kemur skýrt fram í samþykkt um hundahald á Akranesi nr. 782 frá 1. október 2010,…Lesa meira

true

Endurbótum lokið á búningsklefum

Nú er lokið endurbótum á búningsklefum í Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi. Hafa bæði karla- og kvennaklefar verið opnaðir að nýju eftir framkvæmdir síðustu mánaða. Fram kemur á upplýsingasíðu Borgarbyggðar að framkvæmdir við karlaklefann hafi byrjað um miðjan nóvember á síðasta ári. Þar var rýmið stækkað, skipulagi breytt og nýjum sturtum bætt við til að bæta aðstöðu…Lesa meira

true

Skoða framtíðarmöguleika í uppbyggingu íþróttamannvirkja í Stykkishólmi

Bæjarstjórn Stykkishólms stóð fyrir umræðu- og kynningarfundi í Höfðaborg fyrir íbúa sveitarfélagsins í gær þar sem ræddar voru fyrirliggjandi hugmyndir í tengslum við vinnu starfshóps, sem bæjarstjórn hafði skipað fyrir nokkru síðan, um mótun stefnu sveitarfélagsins í íþróttamálum. Hlutverk starfshópsins fólst m.a. í því að móta framtíðarsýn um fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf fyrir íbúa á…Lesa meira

true

Ráðherra ætlar að leggja af línuívilnum og skel- og rækjubætur

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 undir heitinu „sértækar ívilnanir og jöfnunarheimild,“ en þar er í raun verið að afnema línuívilnun auk og rækju- og skelbóta. Á sama tíma er mælt fyrir um tímabundna jöfnunarheimild vegna viðbótaraflamagns til strandveiða á yfirstandandi…Lesa meira

true

Skagamennirnir urðu Góumeistarar BB

Á mánudagskvöldið síðasta lauk Góutvímenningi Bridgefélags Borgarfjarðar í Logalandi. Prýðileg þátttaka var á mótinu en samanlagður árangur þriggja kvölda gilti til verðlauna. Það voru Skagamennirnir Ólafur Grétar Ólafsson og Viktor Björnsson sem báru sigur úr býtum, spiluðu af öryggi öll kvöldin og uppskáru 177,4 stig. Þeir félagar voru sjóðheitir en einungis fimm dögum áður gerðu…Lesa meira

true

Sólmyrkvinn er viðskiptatækifæri fyrir bændur og landeigendur

Markaðsstofa Vesturlands bendir bændum og landeigendum á Vesturlandi á mikla eftirspurn eftir gistingu, tjaldsvæði eða annarri þjónustu fyrir gesti dagana kringum sólmyrkvann 12. ágúst í sumar. Vesturland er uppselt og landeigendum, bændum og ferðaþjónustufyrirtækjum bent á að bregðast við. Búist er við miklu fjölmenni með tilheyrandi álagi á vegi og þjónustu. Þá verður álag á…Lesa meira

true

Hvasst sunnan við fjöll og vetrarfærð fyrir norðan

Vetrarfærð er víða á landinu þar sem enn snjóar um mest allt norðanvert landið. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að hviðótt er á vesturhelmingi landsins, einkum sunnan og suðvestan undir fjöllum, þar sem hviður geta náð allt að 35 m/s. Það á sérstaklega við um svæði eins og Kjalarnes, sunnanvert Snæfellsnes, sunnantil á Vestfjörðum…Lesa meira

true

Dagverðará verður skipt upp til að auðvelda sölu

Helmingur jarðarinnar að Dagverðará á Snæfellsnesi er nú til sölu fyrir 60 milljónir króna. Umhverfis- og skipulagsráð Snæfellsbæjar hefur samþykkt að eigendur jarðarinnar megi skipta upp jörðinni svo hægt sé að selja helming hennar. Hollenskur athafnamaður sem ætlar að byggja hótel í Hvalfirði hefur augastað á jörðinni. Eyðibýlið að Dagverðará er þekkt kennileiti á Snæfellsnesi.…Lesa meira