
Júlíana Jónasdóttir skáldkona úr Akureyjum var fyrsta íslenska konan sem gaf út ljóðabók. Ljóðabókin hennar Stúlka á 150 ára afmæli í dag. Dagskrá hátíðarinnar má finna á: juliana.is
Júlíana er alltaf með mér
„Þessi hátíð hefur gefið lífi mínu tilgang,“ segir athafnakonan Gréta Sig Bjargardóttir í Stykkishólmi sem fékk þá hugmynd fyrir 14 árum að efna til bóka- og söguhátíðar í Stykkishólmi. Þrettánda Júlíönuhátíðin verður haldin í Stykkishólmi 19. til 21. mars en hátíðin er ein metnaðarfyllsta menningarhátíð á Vesturlandi og lifir eingöngu á frjálsum framlögum og styrkjum.