Blásið verður til tónlistarhátíðar á Hellissandi vegna atburðarins.

Sólmyrkvinn er viðskiptatækifæri fyrir bændur og landeigendur

Markaðsstofa Vesturlands bendir bændum og landeigendum á Vesturlandi á mikla eftirspurn eftir gistingu, tjaldsvæði eða annarri þjónustu fyrir gesti dagana kringum sólmyrkvann 12. ágúst í sumar. Vesturland er uppselt og landeigendum, bændum og ferðaþjónustufyrirtækjum bent á að bregðast við. Búist er við miklu fjölmenni með tilheyrandi álagi á vegi og þjónustu. Þá verður álag á fjarskipti vegna mannfjölda. Einnig gæti orðið mikil þyrluumferð, flug einkaflugvéla og vitað er um mörg skemmtiferðaskip á þessum slóðum.