
Hundamálið verður áfram til meðferðar í stjórnkerfinu
Á dögunum kom fram að Úrskurðarnefnd auðlinda- og umhverfismála ógilti bann Akraneskaupstðar í máli tiltekins íbúa á Akranesi við hundahaldi, þar sem viðkomandi var bannað hundahald í sveitarfélaginu vegna atviks sem átti sér stað 8. ágúst á síðasta ári. Nú kemur skýrt fram í samþykkt um hundahald á Akranesi nr. 782 frá 1. október 2010, að fjöldi hunda er takmarkaður við tvo, en þarna var um fjóra hunda að ræða á heimilinu og engin leyfi til staðar líkt og samþykktin kveður á um. Þá voru hundarnir óskráðir, væntanlega án ábyrgðartryggingar og örmerkis líkt og gert er ráð fyrir. Miðað við lýsingu á málsatvikum þessa tiltekna hundaeiganda þá hefur hann gerst sekur um fleiri en eitt alvarlegt brot á samþykkt um hundahald á Akranesi.