
Viktor og Ólafur Grétar með sigurlaunin á Góumótinu. Ljósm. mm
Skagamennirnir urðu Góumeistarar BB
Í gærkvöldi lauk Góutvímenningi Bridgefélags Borgarfjarðar í Logalandi. Prýðileg þátttaka var á mótinu en samanlagður árangur þriggja kvölda gilti til verðlauna. Það voru Skagamennirnir Ólafur Grétar Ólafsson og Viktor Björnsson sem báru sigur úr býtum, spiluðu af öryggi öll kvöldin og uppskáru 177,4 stig. Þeir félagar voru sjóðheitir en einungis fimm dögum áður gerðu þeir sér lítið fyrir og sigruðu tvímenning í Miðvikudagsklúbbnum við Síðumúla. Í öðru sæti á mótinu urðu þeir Fjölnir Jónsson og Jónmundur Magnús Guðmundsson með 175,3 stig. Leiddu þeir mótið næsta örugglega eftir tvö fyrri kvöldin en slökuðu aðeins á í restina. Þriðju urðu svo Jón Eyjólfsson og Baldur Björnsson með 170,4 stig.