Jörðin Dagverðará er rómuð fyrir náttúrufegurð en hún liggur að þjóðgarðinum Snæfellsjökli.

Dagverðará verður skipt upp til að auðvelda sölu

Helmingur jarðarinnar að Dagverðará á Snæfellsnesi er nú til sölu fyrir 60 milljónir króna. Umhverfis- og skipulagsráð Snæfellsbæjar hefur samþykkt að eigendur jarðarinnar megi skipta upp jörðinni svo hægt sé að selja helming hennar. Hollenskur athafnamaður sem ætlar að byggja hótel í Hvalfirði hefur augastað á jörðinni.