Framtíðarhugmyndir fyrir íþróttasvæði. Á myndinni eru svæðin merkt með lituðum reitum sem gefa til kynna möguleg byggingarsvæði. Mikilvægt er að taka fram að reitirnir sýna ekki fyrirhugaðar byggingar heldur aðeins möguleika á staðsetningu mannvirkja til framtíðar. Teikning: Sveitarfélagið Stykkishólmur.

Skoða framtíðarmöguleika í uppbyggingu íþróttamannvirkja í Stykkishólmi

Bæjarstjórn Stykkishólms stóð fyrir umræðu- og kynningarfundi í Höfðaborg fyrir íbúa sveitarfélagsins í gær þar sem ræddar voru fyrirliggjandi hugmyndir í tengslum við vinnu starfshóps, sem bæjarstjórn hafði skipað fyrir nokkru síðan, um mótun stefnu sveitarfélagsins í íþróttamálum.