Hvasst sunnan við fjöll og vetrarfærð fyrir norðan

Vetrarfærð er víða á landinu þar sem enn snjóar um mest allt norðanvert landið. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að hviðótt er á vesturhelmingi landsins, einkum sunnan og suðvestan undir fjöllum, þar sem hviður geta náð allt að 35 m/s. Það á sérstaklega við um svæði eins og Kjalarnes, sunnanvert Snæfellsnes, sunnantil á Vestfjörðum og á Norðvesturlandi. Ekki dregur úr vindi fyrr en seint í kvöld og í nótt.