
Ráðherra ætlar að leggja af línuívilnum og skel- og rækjubætur
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 undir heitinu „sértækar ívilnanir og jöfnunarheimild,“ en þar er í raun verið að afnema línuívilnun auk og rækju- og skelbóta. Á sama tíma er mælt fyrir um tímabundna jöfnunarheimild vegna viðbótaraflamagns til strandveiða á yfirstandandi fiskveiðiári. Það hefur eins og kunnugt er verið einörð stefna Flokks fólksins, sem ráðherra tilheyrir, að auka strandveiðar, en fram til þessa hefur skort veiðiheimildir. Athygli vekur að frumvarpið leggur ráðherra ekki fram í Samráðsgátt stjórnvalda, eins og venjan er, til þess að almenningur og hagaðilar geti tjáð sig um það. Ráðherra hyggst með þessum framgangsmáta reyna að flýta afgreiðslu málsins. Ef frumvarpið verður að lögum segir bæjarstjóri það vera reiðarslag fyrir atvinnulíf í Stykkishólmi.