
Fulltrúar Rauða kross deildarinnar í Dölum og Reykhólahreppi komu í síðustu viku færandi hendi og afhentu Bjarka Þorsteinssyni sveitarstjóra og Ísak Sigfússyni lýðheilsufulltrúa Dalabyggðar höfðinglegan styrk frá félaginu. Hann mun renna til kaupa á björgunar og/eða skyndihjálparbúnaði í nýju Íþróttamiðstöðina í Búðardal. „Það er ómetanlegt að finna þann stuðning sem uppbygging Íþróttamiðstöðvarinnar nýtur í samfélaginu…Lesa meira








