
Elízabeth opnar myndlistarsýningu á Hótel Varmalandi
Listakonan Elízabeth Goodall Alexandersdóttir opnar myndlistarsýningu á Hótel Varmalandi í Borgarfirði fimmtudaginn 19. mars klukkan 20. Elízabeth er sjálflærð en hefur haldið nokkrar sýningar og vakið athygli fyrir abstrakt myndir sínar. Hótelstjórinn á Hótel Varmalandi hreifst af verkum Elízabethar og bauð henni að opna þar sýningu, sem nú er að verða að veruleika. „Með því að bjóða Elízabeth að opna málverkasýningu hjá okkur viljum við standa við bakið á henni og koma verkum hennar á framfæri. Hún býr hér í nágrenninu og list hennar á fullt erindi við þá sem sækja hótelið heim. Heimamenn eiga að njóta þess að við getum boðið húsnæði undir menningu sem þessa,“ segir Ásthildur Huber hótelstjóri.
Verkin á sýningunni eru unnin á undanförnum árum. Þau eru abstrakt, unnin með akryl á striga. Elizabeth sækir meðal annars innblástur sinn í árstíðirnar og náttúruna í kringum Varmaland. Sýningin ber heitið Vorjafndægur og stendur til loka ágúst á þessu ári.