Fréttir

true

Nýbygging á Kleppjárnsreykjum fram úr áætlun

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í síðustu viku var lögð fram samantekt Eflu verkfræðistofu og drög að uppgjöri vegna nýbyggingar við Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum. Gögnin sýna að útlit er fyrir að heildarkostnaður verði 1.279 milljónir króna sem samsvarar um 20% hærri fjárhæð en upphaflegt tilboð hljóðaði upp á að teknu tilliti til verðbóta. Hluti fjárhæðarinnar…Lesa meira

true

Sækjast ekki eftir endurkjöri í sveitarstjórn í vor

Þrír af sjö aðalfulltrúum í sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hafa tekið þá ákvörðun að gefa ekki kost á sér til endurkjörs við kosningarnar 16. maí í vor. Þetta eru þau Andrea Ýr Arnarsdóttir oddviti, Helgi Pétur Ottesen ritari sveitarstjórnar og Birkir Snær Guðlaugsson sveitarstjórnarfulltrúi. Þau tóku öll sæti í sveitarstjórn eftir kosningarnar fyrir fjórum árum, en þá…Lesa meira

true

Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum hefst í kvöld

Í kvöld klukkan 18 hefst keppni í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum í Faxaborg í Borgarnesi. Keppt verður í fjórgangi og eru 28 keppendur skráðir til leiks. „Upplagt er að skella sér í Borgarnes og fylgjast með af pöllunum, kostar ekkert inn – en Alendis streymir frá mótinu,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Margrét segir af sér sem rektor

Margrét Njarðvík Jónsdóttir, rektor Háskólans á Bifröst, tilkynnti í gærkvöldi afsögn sína úr embætti við skólann, en starfinu hefur hún gegnt í fimm ár. Greindi Margrét frá ákvörðun sinni í viðtalsþættinum Kastljósi í Ríkissjónvarpinu. „Fyrir þennan Kastljósþátt þá sendi ég bréf á stjórn skólans þar sem ég bað um lausn úr starfi,“ upplýsti Margrét og…Lesa meira

true

Flytja Jóhannesarpassíu Bachs í Eldborgarsalnum

Í tilefni 50 ára afmælis Sumartónleika í Skálholti flytur Kammerkórinn Schola Cantorum, Barokkbandið Brák og Finnish Baroque Orchestra Jóhannesarpassíu J.S. Bachs. Stjórnandi og guðspjallamaður er Benedikt Kristjánsson sem búsettur er á Akranesi. Aðrir flytjendur eru María Konráðsdóttir sópran, Arnheiður Eiríksdóttir mezzósópran, Hrólfur Sæmundsson sem syngur Pílatus og Tobias Berndt sem syngur Jesú. Sumartónleikar í Skálholti…Lesa meira

true

Gott silfur er gulli betra

Í gær lék lið 9. flokks karla hjá ÍA til úrslita í VÍS-bikarkeppni í körfuknattleik gegn Fjölni í Reykjavík. Leikurinn markaði tímamót í sögu félagsins, en 30 ár eru liðin frá því ÍA lék síðast til úrslita í bikarkeppni í körfuknattleik. Þá er þetta jafnframt í fyrsta skipti sem unglingalið félagsins nær svo langt í…Lesa meira

true

Frumvarp um breytingu á lögum um ársreikninga

Atvinnuvegaráðuneytið hefur lagt fram í Samráðsgátt frumvarpsdrög um breytingu á lögum um ársreikninga. „Frumvarpið er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar um einföldun regluverks og skilvirkt rekstrarumhverfi fyrirtækja á Íslandi. „Með frumvarpinu er reynt að tryggja að flokkun félaga samkvæmt ársreikningalögum endurspegli raunverulegt efnahagslegt umfang þeirra. Lögð er til rýmkun á stærðarmörkum þeirra félaga sem geta…Lesa meira

true

Grundarfjörður gerði góða ferð í Mosfellsbæ

Meistaraflokkur Grundarfjarðar í blaki kvenna heimsótti lið Aftureldingar B að Varmá í Mosfellsbæ í gær. Stelpurnar úr Grundarfirði byrjuðu leikinn af krafti og unnu fyrstu hrinuna nokkuð örugglega 13-25 og komust í forystu 0-1. Heimakonur í Aftureldingu mættu aðeins ákveðnari til leiks í annarri hrinu en það dugði þó ekki til þar sem gestirnir unnu…Lesa meira

true

Tónhylur þakkar Skagamönnum fyrir móttökurnar

„Fyrir hönd Tónhyls viljum við færa Skagamönnum þakkir fyrir frábærar móttökur síðasta sumar þegar við tókum upp bíómyndina Undir Ísnum. Það var mikið rætt innan framleiðsluteymisins hvað Skagamenn voru boðnir og búnir til að aðstoða okkur og styðja við ungt fólk í kvikmyndagerð. Okkar bestu þakkir fá Sundlaugin á Jaðarbökkum, Kallabakarí og Lemon Akranesi. Stuðningurinn…Lesa meira

true

Nú styttist í vígslu á íþróttamannvirkjum í Búðardal

Það var létt yfir mannskapnum sem blaðamaður Skessuhorns hitti í nýju íþróttahúsi og sundlaug í Búðardal síðdegis á föstudaginn. Iðnaðarmenn voru að störfum og leggja nú nótt við dag að ljúka framkvæmdum tímanlega fyrir vígslu hússins í lok þessa mánaðar. Það var 11. júní fyrir hálfu öðru ári, sama dag og Dalabyggð fagnaði 30 ára…Lesa meira