
Nýbyggingin við Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum. Ljósm. úr safni/þgb
Nýbygging á Kleppjárnsreykjum fram úr áætlun
Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í síðustu viku var lögð fram samantekt Eflu verkfræðistofu og drög að uppgjöri vegna nýbyggingar við Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum. Gögnin sýna að útlit er fyrir að heildarkostnaður verði 1.279 milljónir króna sem samsvarar um 20% hærri fjárhæð en upphaflegt tilboð hljóðaði upp á að teknu tilliti til verðbóta. Hluti fjárhæðarinnar fellur inn á árið 2026 og lagði byggðarráð til við sveitarstjórn að hækka fjárfestingaramma vegna nýbyggingarinnar um 40 milljónir. Fram kom að gert hefði verið ráð fyrir þeirri hækkun í viðauka I við fjárhagsáætlun 2026.