Margrét Jónsdóttir Njarðvík hefur gegnt stöðu rektors undanfarin fimm ár. Ljósm. Skessuhorn/kgk

Margrét segir af sér sem rektor

Margrét Njarðvík Jónsdóttir, rektor Háskólans á Bifröst, tilkynnti í gærkvöldi afsögn sína úr embætti við skólann, en starfinu hefur hún gegnt í fimm ár. Greindi Margrét frá ákvörðun sinni í viðtalsþættinum Kastljósi í Ríkissjónvarpinu. „Fyrir þennan Kastljósþátt þá sendi ég bréf á stjórn skólans þar sem ég bað um lausn úr starfi,“ upplýsti Margrét og bætti við: „Ég hef fylgst með opinberri aftöku minni í fjölmiðlum frá 14. janúar og þetta hefur verið að malla innra með mér. Sérstaklega þegar ég sá að umræðan var farin að hafa áhrif á nemendur gerði ég það.“