
Halla Tómasdóttir forseti Íslands afhenti Íslensku bókmenntaverðlaunin og íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann á Bessastöðum í gær. Verðlaunaféð er ein milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk og eru í boði Félags íslenskra bókaútgefenda. Verðlaunagripurinn Blængur, blásvartur hrafn steyptur í kopar, eftir myndlistarmanninn Matthías Rúnar Sigurðarson, var afhentur verðlaunahöfum. Soffía Björg Óðinsdóttir frá Einarsnesi spilaði og söng lag í…Lesa meira








