
Verðlaunahafar á Bessastöðum. F.v: Sigrún, Elín Elísabet, Ævar Þór, Kristín Svava og Margrét. Ljósm. ruv.is/ Ragnar Visage
Vestlendingar áttu sviðið við afhendingu Íslensku bókmenntaverðlaunanna
Halla Tómasdóttir forseti Íslands afhenti Íslensku bókmenntaverðlaunin og íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann á Bessastöðum í gær. Verðlaunaféð er ein milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk og eru í boði Félags íslenskra bókaútgefenda. Verðlaunagripurinn Blængur, blásvartur hrafn steyptur í kopar, eftir myndlistarmanninn Matthías Rúnar Sigurðarson, var afhentur verðlaunahöfum. Soffía Björg Óðinsdóttir frá Einarsnesi spilaði og söng lag í lok athafnar sem amma hennar, Soffía Karlsdóttir, gerði frægt á sínum tíma.