Íþróttir

true

Snæfell lagði Hamar í hörkuleik í Hveragerði

Snæfell vann góðan útisigur á Hamri, 84:78, í Bæjarins Bestu deild karla í körfuknattleik í Hveragerði í gærkvöldi. Hólmarar byrjuðu leikinn af miklum krafti, misstu forskotið niður en náðu aftur undirtökunum í síðari hálfleik og tryggðu sér að lokum sex stiga sigur. Snæfell var mun sterkari aðilinn í fyrsta leikhluta og leiddi 26:12 að honum…Lesa meira

true

Skallagrímur vaknaði of seint gegn Breiðabliki

Skallagrímur mátti sætta sig við 13 stiga tap, 104:91, gegn Breiðabliki í Bæjarins Bestu deild karla í körfuknattleik í Smáranum í Kópavogi í gærkvöldi. Borgnesingar lentu snemma undir, áttu erfitt uppdráttar í fyrri hálfleik en sýndu mun betri leik eftir hlé og náðu að minnka muninn verulega áður en yfir lauk. Breiðablik hafði sex stiga…Lesa meira

true

Hlutu viðurkenningar á uppskeruhátíð Borgfirðings

Hestamannafélagið Borgfirðingur hélt uppskeruhátíð sína 7. nóvember síðastliðinn. Þar var þeim keppendum sem bestum árangri náðu á árinu veitt viðurkenning. Íþróttamanneskja Borgfirðings árið 2026 var kjörin Kristín Eir Holaker Hauksdóttir á Skáney. Í barnaflokki hlaut Kristján Fjeldsted viðurkenningu, í unglingaflokki Kristín Eir, í ungmennaflokki Raluca Schwark, í flokki áhugamana Arna Hrönn Ámundadóttir og í flokki…Lesa meira

true

Landsbankamót í sundi haldið í Bjarnalaug

Í gær fór Landsbankamót Sundfélags Akraness fram í Bjarnalaug. Þar ríkti mikið fjör og frábær stemning. Þátttakendur stóðu sig með stakri prýði en alls tók 41 krakki á aldrinum 7–12 ára þátt. Keppt var í baksund, bringusundi og skriðsundi. Að Landsbankamóti loknu var verðlaunaafhending og happdrætti fyrir sundkrakkana í hátíðarsalnum á Jaðarsbökkum. „Sundfélag Akranes þakkar…Lesa meira

true

Skallagrímskonur áttu erfitt uppdráttar gegn Þórsurum

Skallagrímur beið stóran ósigur gegn Þór frá Þorlákshöfn, 89:49, í Bæjarins bestu deild kvenna í körfuknattleik í gær. Leikið var í Icelandic Glacial-höllinni í Þorlákshöfn þar sem heimakonur tóku snemma frumkvæðið og höfðu yfirburði lengst af. Berta María Þorkelsdóttir var langatkvæðamest í liði Skallagríms en það dugði skammt gegn öflugu liði Þórs. Heimakonur byrjuðu leikinn…Lesa meira

true

Karen Anna með þrenn verðlaun og landsliðslágmark

Karen Anna Orlita náði glæsilegum árangri á Íslands- og unglingameistaramótinu í sundi í 25 metra laug sem fram fór í Ásvallalaug í Hafnarfirði um helgina. Hún vann til þrennra verðlauna, bætti sinn besta tíma í öllum fimm greinum sem hún keppti í og náði landsliðslágmarki fyrir Framtíðarhóp Sundsambands Íslands. Í 100 metra skriðsundi vann Karen…Lesa meira

true

Snæfell missti sigurinn úr höndum sér gegn Þórsurum

Snæfell mátti sætta sig við níu stiga tap gegn Þór frá Þorlákshöfn, 93:102, í hörkuleik í körfunni í Stykkishólmi á föstudaginn. Heimamenn áttu góða spretti og höfðu þriggja stiga forystu eftir fyrsta leikhluta. Þeir náðu einnig að snúa leiknum sér í vil í þriðja leikhluta en Þórsarar reyndust sterkari á lokakaflanum og tryggðu sér sigurinn…Lesa meira

true

Stórsigur Skallagríms á Hamri í Borgarnesi

Skallagrímur vann sannfærandi sigur á Hamri, 105:83, í körfunni á föstudaginn. Borgnesingar tóku strax öll völd á heimavelli sínum og lögðu grunninn að sigrinum með frábærum fyrri hálfleik. Heimamenn sýndu mikinn sóknarkraft og leiddu með 31 stigi í leikhléi, 63:32, fyrir framan 178 áhorfendur. Skallagrímsmenn byrjuðu af miklum krafti og unnu fyrsta leikhluta 31:16. Þeir…Lesa meira

true

Öflugur fyrri hálfleikur lagði grunn að sigri ÍA á Fjölni

ÍA vann góðan sigur á Fjölni, 104:93, í körfunni í leik sem spilaður var í AvAir-höllinni á Akranesi í gær. Skagamenn lögðu grunninn að sigrinum með öflugum fyrri hálfleik þar sem þeir skoruðu 60 stig gegn 45 stigum gestanna. Fjölnismenn sóttu í sig veðrið eftir hlé en heimamenn héldu forystunni og fögnuðu að lokum ellefu…Lesa meira

true

Ingimar Elí á förum frá ÍA

Ingimar Elí Hlynsson hefur óskað eftir því að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA. Frá þessu er greint á síðu félagsins. „Ingimar mun starfa hjá félaginu til áramóta og vinna með stjórn og starfsfólki í þeim verkefnum sem eru í gangi og framundan eru. Stjórn Knattspyrnufélags ÍA þakkar Ingimari fyrir hans framlag og störf…Lesa meira