Snæfell lagði Hamar í hörkuleik í Hveragerði

Snæfell vann góðan útisigur á Hamri, 84:78, í Bæjarins Bestu deild karla í körfuknattleik í Hveragerði í gærkvöldi. Hólmarar byrjuðu leikinn af miklum krafti, misstu forskotið niður en náðu aftur undirtökunum í síðari hálfleik og tryggðu sér að lokum sex stiga sigur.