
Skallagrímur vaknaði of seint gegn Breiðabliki
Skallagrímur mátti sætta sig við 13 stiga tap, 104:91, gegn Breiðabliki í Bæjarins Bestu deild karla í körfuknattleik í Smáranum í Kópavogi í gærkvöldi. Borgnesingar lentu snemma undir, áttu erfitt uppdráttar í fyrri hálfleik en sýndu mun betri leik eftir hlé og náðu að minnka muninn verulega áður en yfir lauk.