Karen Anna stendur hér við hlið Willums Þórs Þórssonar forseta ÍSÍ. Ljósm. ssí

Karen Anna með þrenn verðlaun og landsliðslágmark

Karen Anna Orlita náði glæsilegum árangri á Íslands- og unglingameistaramótinu í sundi í 25 metra laug sem fram fór í Ásvallalaug í Hafnarfirði um helgina. Hún vann til þrennra verðlauna, bætti sinn besta tíma í öllum fimm greinum sem hún keppti í og náði landsliðslágmarki fyrir Framtíðarhóp Sundsambands Íslands.