
Ingimar Elí Hlynsson. Ljósm. Hafliði Breiðfjörð
Ingimar Elí á förum frá ÍA
Ingimar Elí Hlynsson hefur óskað eftir því að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA. Frá þessu er greint á síðu félagsins. „Ingimar mun starfa hjá félaginu til áramóta og vinna með stjórn og starfsfólki í þeim verkefnum sem eru í gangi og framundan eru. Stjórn Knattspyrnufélags ÍA þakkar Ingimari fyrir hans framlag og störf í þágu félagsins og óskar honum velfarnaðar í því sem tekur við. Auglýst verður eftir nýjum framkvæmdastjóra félagsins fljótlega.“