Íþróttir

true

Öruggur útisigur ÍA á Þór í Þorlákshöfn

ÍA vann góðan tíu stiga sigur á Þór Þorlákshöfn, 104:94, í 1. deild karla í körfuknattleik síðastliðið föstudagskvöld. Leikið var í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn að viðstöddum 170 áhorfendum. Skagamenn tóku frumkvæðið strax í upphafi og leiddu með sjö stigum eftir fyrsta leikhluta, 27:20. Heimamenn náðu að minnka muninn lítillega í öðrum leikhluta en…Lesa meira

true

Skallagrímskonur töpuðu naumlega fyrir Haukum

Skallagrímskonur máttu sætta sig við naumt tveggja stiga tap, 72:74, gegn Haukum í 1. deild kvenna í körfuknattleik í Borgarnesi á laugardag. Heimakonur höfðu frumkvæðið í upphafi og leiddu lengst af fyrri hálfleik, en gestirnir náðu að jafna metin fyrir síðasta leikhlutann og knýja fram sigur í jöfnum og spennandi leik. Skallagrímur leiddi 24:16 eftir…Lesa meira

true

Skallagrímur beið ósigur í Hafnarfirðinum

Skallagrímur mátti sætta sig við átta stiga tap gegn Haukum, 101:93, í 1. deild karla í körfuknattleik síðastliðið föstudagskvöld. Leikið var á heimavelli Hauka í Hafnarfirði en þetta var fjórði sigur heimamanna í jafnmörgum leikjum á tímabilinu. Haukar sýndu mikinn sóknarstyrk og náðu að tryggja sér sigur þrátt fyrir ágæta mótspyrnu Borgnesinga. Heimamenn hittu vel…Lesa meira

true

Dagskrá Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum

Á aðalfundi Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum 22. október síðastliðinn var ákveðin dagskrá mótaraðarinnar í Faxaborg í vetur. „Hægt er að bæta við tveimur til þremur liðum og eru áhugasamir hvattir til að setja sig í samband við formann deildarinnar, Kristján Gíslason kristgis@simnet.is sem allra fyrst,“ segir í tilkynningu. Dagsetningar og keppnisgreinar eru þessar: Þriðjudaginn 9. febrúar…Lesa meira

true

Lárus Orri lætur af þjálfun karlaliðs ÍA

Eftir lokaleik karlaliðs ÍA í Bestu deildinni í gær var tilkynnt að Lárus Orri Sigurðsson hættir sem þjálfari meistaraflokks. Í lokaleik liðsins var sannkölluð markaveisla þegar ÍA og Keflavík skildu jöfn 4-4 í leik sem þurfti að spila í Akraneshöllinni. Skagamenn enduðu í fjórða sæti deildarinnar sem er besti árangur liðsins í 19 ár.  Lárus…Lesa meira

true

Nýtt hreyfinámskeið fyrir fólk með fötlun á Akranesi

Nýtt hreyfinámskeið fyrir fólk með fötlun, 18 ára og eldra, hefst í World Class á Akranesi mánudaginn 26. október. Markmiðið er að efla hreyfingu og vellíðan þátttakenda og kynna þeim undirstöðuatriði líkamsræktar í öruggu og hvetjandi umhverfi. Námskeiðið verður haldið á mánudögum kl. 13.30–14.15 undir leiðsögn Geralds Brimis Einarssonar, þjálfara hjá World Class. Áhersla verður…Lesa meira

true

ÍA úr leik í VÍS-bikarnum eftir tap gegn Álftanesi

Karlalið ÍA í körfuknattleik er úr leik í VÍS-bikarnum eftir 73:95 tap gegn Álftanesi í AvAir höllinni á Akranesi í gærkvöldi, mánudaginn 19. október. Gestirnir náðu undirtökunum snemma leiks og tryggðu sér öruggan sigur. Rúmlega 200 manns fylgdust með leiknum. Leikurinn var jafn framan af og staðan 19:21 um miðjan fyrri hálfleik. Þá tóku gestirnir…Lesa meira

true

Skagamenn tryggðu sér sigur á Fram með dramatískum hætti

Skagamenn unnu dramatískan 4:2 sigur á Fram á Lambhagavellinum í Reykjavík í gærkveldi, mánudaginn 19. október, í næstsíðustu umferð efri hluta Bestu deildar karla í fótbolta. Tvö mörk í uppbótartíma tryggðu ÍA stigin þrjú og lyftu liðinu upp í fjórða sæti deildarinnar. Framarar byrjuðu af krafti og Kristófer Konráðsson kom heimamönnum yfir strax á fjórðu…Lesa meira

true

Skallagrímur beið lægri hlut gegn Selfossi

Skallagrímur tapaði fyrir Selfossi, 86:69, í 1. deild karla í körfuknattleik í Vallaskóla á Selfossi fimmtudagskvöldið 15. október. Heimamenn lögðu grunninn að sigrinum með öflugum öðrum leikhluta þar sem þeir skoruðu 34 stig gegn 20 stigum Borgnesinga. Leikurinn fór jafnt af stað og leiddu Selfyssingar með tveimur stigum, 20:18, eftir fyrsta leikhluta. Í öðrum leikhluta…Lesa meira

true

Öruggur sigur ÍA á Snæfelli í Vesturlandsslag

Skagamenn höfðu mikla yfirburði þegar þeir tóku á móti Snæfelli í 1. deild karla í körfuknattleik í AvAir höllinni á föstudagskvöld. ÍA sigraði 113:81 eftir að hafa lagt grunninn að sigrinum strax í fyrsta leikhluta. Alls fylgdust 237 áhorfendur með viðureigninni. Heimamenn byrjuðu af miklum krafti og unnu fyrsta leikhlutann 33:15. Jafnræði var með liðunum…Lesa meira