Svipmynd frá lokakvöldi Vesturlandsdeildarinnar vorið 2024. Ferjukotsstelpur í braut. Ljósm. úr safni Skessuhorns

Dagskrá Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum

Á aðalfundi Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum 22. október síðastliðinn var ákveðin dagskrá mótaraðarinnar í Faxaborg í vetur. „Hægt er að bæta við tveimur til þremur liðum og eru áhugasamir hvattir til að setja sig í samband við formann deildarinnar, Kristján Gíslason kristgis@simnet.is sem allra fyrst,“ segir í tilkynningu. Dagsetningar og keppnisgreinar eru þessar:

Þriðjudaginn 9. febrúar verður fjórgangur V1. Þriðjudaginn 2. mars verður slaktaumatölt T2, miðvikudaginn 24. mars verður Fimmgangur F1, þriðjudaginn 13. apríl verður tölt T1 og skeið í gegn um höllina og loks laugardaginn 17. apríl verður lokahóf.