Úr leik Skallagríms og Selfoss. Ljósm. Selfoss.

Skallagrímur beið lægri hlut gegn Selfossi

Skallagrímur tapaði fyrir Selfossi, 86:69, í 1. deild karla í körfuknattleik í Vallaskóla á Selfossi fimmtudagskvöldið 15. október. Heimamenn lögðu grunninn að sigrinum með öflugum öðrum leikhluta þar sem þeir skoruðu 34 stig gegn 20 stigum Borgnesinga.