
ÍA úr leik í VÍS-bikarnum eftir tap gegn Álftanesi
Karlalið ÍA í körfuknattleik er úr leik í VÍS-bikarnum eftir 73:95 tap gegn Álftanesi í AvAir höllinni á Akranesi í gærkvöldi, mánudaginn 19. október. Gestirnir náðu undirtökunum snemma leiks og tryggðu sér öruggan sigur. Rúmlega 200 manns fylgdust með leiknum.