Lárus Orri Sigurðsson. Ljósm. Skessuhorn / ÓHK

Lárus Orri lætur af þjálfun karlaliðs ÍA

Eftir lokaleik karlaliðs ÍA í Bestu deildinni í gær var tilkynnt að Lárus Orri Sigurðsson hættir sem þjálfari meistaraflokks. Í lokaleik liðsins var sannkölluð markaveisla þegar ÍA og Keflavík skildu jöfn 4-4 í leik sem þurfti að spila í Akraneshöllinni. Skagamenn enduðu í fjórða sæti deildarinnar sem er besti árangur liðsins í 19 ár.  Lárus Orri tók við liðinu um mitt síðasta sumar þegar það var í botnsæti deildarinnar en hann náði að bjarga liðinu frá falli og hefur gengið þess verið ágætt í sumar, en vissulega nokkuð kaflaskipt.