Fréttir

true

Vilja formlegar viðræður um þjóðarleikvang í golfi

Allir fulltrúar í skipulags- og umhverfisráði Akraneskaupstaðar samþykktu á síðasta fundi sínum áskoranir til Akraneskaupstaðar um að kanna möguleika á þjóðarleikvangi í golfi á Akranesi. Þar verði leitað eftir samningi við Golfsamband Íslands og Golfklúbbinn Leyni. Samþykktu bæði meiri- og minnihlutafulltrúar í ráðinu ályktanir þess efnis. Fulltrúar meirihlutans segjast hlynntir því að hafnar verði formlegar…Lesa meira

true

Dalabyggð veitir styrki til menningarmála

Menningarmálanefnd Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum á dögunum að veita sjö styrki úr Menningarmálaverkefnasjóði vegna ársins 2026. Samkvæmt reglum sjóðsins skal úthlutað úr sjóðnum fyrir 1. febrúar ár hvert. Alls bárust að þessu sinni átta umsóknir en til úthlutunar voru 1.500.000 krónur. Eins og áður sagði samþykkti nefndin að veita sjö styrki að þessu sinni.…Lesa meira

true

Einn íbúi á Vesturlandi eldri en hundrað ára

Í dag eru 41 íbúi á Íslandi yfir eitt hundrað ára gamall. Af þeim eiga tveir þeirra maka á lífi. Þetta kemur fram í tölum frá Þjóðskrá. Elsti núlifandi íbúi landsins er kona sem fædd er árið 1920 og er því 105 ára. Hún er búsett á höfuðborgarsvæðinu. Þar búa líka flestir þeirra sem nú…Lesa meira

true

Sturla er íþróttamaður Snæfells 2025

Héraðssambandið Snæfell hefur útnefnt Sturlu Böðvarsson Íþróttamann Snæfells árið 2025. Þrátt fyrir ungan aldur er Sturla máttarstólpi meistaraflokks karla í körfubolta og hefur leikið á alls oddi að undanförnu. Auk þess að spila með heimaliði sínu er Sturla í landsliðshópi U-18 í körfu, ásamt Öddu Sigríði Ásmundsdóttur. Valdís Helga Alexandersdóttir er svo í U-16 landsliðshópnum.…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn með góðan sigur á Hamri

Lið Skallagríms og Hamars í Hveragerði mættust í 1. deildinni í körfu karla í Borgarnesi á föstudagskvöld. Hamarsmenn hafa átt erfitt uppdráttar í deildinni í vetur og hafa setið við botn deildarinnar en liðsmenn Skallagríms hafa verið að þokast upp deildina. Sá stöðumunur endurspeglaðist nokkuð greinilega í leiknum. Strax í upphafi náðu heimamenn frumkvæðinu og…Lesa meira

true

Helgi Guðjónsson er íþróttamanneskja Borgarfjarðar 2025 – myndasyrpa

Kjöri Íþróttamanneskju Borgarfjarðar 2025 var lýst við hátíðlega athöfn í Hjálmakletti í Borgarnesi í gær. Þar afhenti forsvarsfólk UMSB jafnframt ýmsar viðurkenningar fyrir góðan árangur á liðnu ári. Íþróttamanneskja Borgarfjarðar 2025 er Helgi Guðjónsson knattspyrnumaður úr UMFR. Helgi átti án efa sitt besta ár þar sem hann var einn besti leikmaður fyrnasterks liðs Víkings Reykjavíkur…Lesa meira

true

Snæfell tapaði gegn Selfossi

Snæfellskonur fengu lið Selfoss í heimsókn á föstudagskvöldið í 1. deildainni í körfu. Leikurinn var nokkuð jafn í fyrsta leikhluta og í lok hans var staðan jöfn 19-19. Í öðrum leikhluta náðu gestirnir yfirhöndinni og í hálfleik var staðan 25-33 þeim í vil. Áfram jókst forskot gestanna í síðari hálfleik og þegar flautað var til…Lesa meira

true

Kynþroska loðnu að finna á stóru svæði

Floti rannsóknar- og veiðiskipa sem leitað hefur loðnu við landið undanfarna daga hefur fundið kynþroska loðnu á stóru svæði norður og austur af landinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafrannsóknastofnun. Leiðangrinum er ekki að fullu lokið því svæðið út af Vestfjörðum er ókannað. Loðnan var dreifð yfir stóran hluta yfirferðarsvæðisins. Mesti þéttleikinn var í…Lesa meira

true

Aldrei fleiri samtöl til RKÍ vegna sjálfsvígshugsana

Á síðasta ári var 1.728 sinnum haft samband við 1717, Hjálparsíma Rauða krossins, vegna sjálfsvígshugsana. Er það oftar en nokkru sinni áður. „Árið 2024 voru slík samtöl 1.035 talsins og er aukningin milli ára því 67%. „Þrátt fyrir að hafa reglulega yfir árið tekið saman tölur um fjölda sjálfsvígssamtala sem berast 1717, og vera meðvituð…Lesa meira

true

Landinn kaupir meira í erlendri netverslun

Rannsóknasetur verslunarinnar birtir mánaðarlega tölur um erlenda netverslun á innri vef sínum, veltan.is. Nú hafa tölur nóvembermánaðar verið birtar og má sjá að netverslun jókst um rúm 13% í nóvember 2025 miðað við sama mánuð 2024. Erlend netverslun í nóvember nam rúmum 3,6 milljörðum. Fatnaður er sem fyrr stærsti einstaki liður erlendrar netverslunar og nemur…Lesa meira