
Héraðssambandið Snæfell hefur útnefnt Sturlu Böðvarsson Íþróttamann Snæfells árið 2025. Þrátt fyrir ungan aldur er Sturla máttarstólpi meistaraflokks karla í körfubolta og hefur leikið á alls oddi að undanförnu. Auk þess að spila með heimaliði sínu er Sturla í landsliðshópi U-18 í körfu, ásamt Öddu Sigríði Ásmundsdóttur. Valdís Helga Alexandersdóttir er svo í U-16 landsliðshópnum.…Lesa meira







