Fréttir

true

Brjóstaskimun gerð nánast gjaldfrjáls

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að lækka almennt gjald fyrir brjóstaskimun úr 6.098 kr. í 500 kr. og tekur breytingin gildi 14. október. Skimun er mikilvæg forsenda snemmgreiningar brjóstakrabbameina og hefur mikinn ávinning fyrir einstaklinga og samfélag. Snemmgreining þýðir einfaldari meðferð, bættar lífslíkur og dregur úr kostnaði heilbrigðiskerfisins. Willum Þór kynnti ákvörðun sína á…Lesa meira

true

Landsbjörg tekur í dag formlega á móti nýrri Björg sem fer svo í Rif

Í dag klukkan 11 verður Björgun 24, alþjóðleg ráðstefna Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem haldin er annað hvert ár, sett í Silfurbergi í Hörpu. Við það tilefni verður nýjasta björgunarskip Landsbjargar, Björg, sem verður staðsett í Rifi, afhent félaginu formlega og tilkynnt um áframhald endurnýjunar björgunarskipaflota félagsins. Ráðstefnunni verður síðan fram haldið til sunnudags. Á sunnudaginn verður…Lesa meira

true

Fjórði bekkur í Brekkó fór í kartöfluleit

Á Byggðasafninu í Görðum á Akranesi er lítill kartöflugarður við hliðina á húsinu Söndum á safnasvæðinu sem Brekkubæjarskóli hefur til afnota fyrir kartöflubændur í 3. og 4. bekk skólans. Fram kemur á FB síðu skólans að á vorin fara sumsé krakkarnir í 3. bekk og setja niður kartöflur og mæta svo aftur að hausti sem…Lesa meira

true

Áform um vindorkuver hafa áhrif til lækkunar fasteignaverðs

Talið er að hér á landi hafi verið lýst áformum eða vilja til að reisa á fjórða tug vindorkuvera. Í flestum tilfellum standa á bak við þessi áform erlendir fjárfestar. Þar af eru nokkur áform um slíkar virkjanir hér á Vesturlandi. Í engu tilfella hefur orðið af þessum framkvæmdum enn sem komið er, enda skortir…Lesa meira

true

Fjármálaráðherra endurnýjar þjóðlendukröfur í eyjar og sker

Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra hefur fyrir hönd íslenska ríkisins afhent óbyggðanefnd endurskoðaðar þjóðlendukröfur vegna eyja og skerja umhverfis landið. Kröfulýsingarnar og upplýsingar um málsmeðferðina er að finna á vefsíðu óbyggðanefndar. Þar er m.a. að finna samantekt lögmanna ríkisins um endurskoðunina. Einnig hefur verið sett upp kortasjá um kröfurnar. Í henni er grá þekja…Lesa meira

true

Samningar um svæðisbundin farsældarráð

Undirritaður hefur verið samningur milli mennta- og barnamálaráðherra og sjö landshlutasamtaka sveitarfélaga um ráðningu verkefnisstjóra sem leiða munu undirbúning að stofnun svæðisbundins farsældarráðs í hverjum landshluta fyrir sig. Með samningnum hafa öll sveitarfélög landsins skuldbundið sig til þess að hefja vinnu við að hrinda 5. grein laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna í…Lesa meira

true

Jón Þór semur við ÍA til þriggja ára

Knattspyrnufélag ÍA hefur tilkynnt að félagið hafi framlengt samning sinn við Jón Þór Hauksson, þjálfara Skagamanna í Bestu deild karla, til næstu þriggja ára. Jón Þór er á sínu þriðja tímabili sem þjálfari liðsins. ÍA féll úr Bestu deildinni árið 2022 en vann Lengjudeildina 2023 og kom sér aftur upp í deild þeirra bestu. Sem…Lesa meira

true

Vogabraut við FVA lokuð næstu daga

Nú er hafin vinna hjá skipulags- og umhverfissviði Akraneskaupstaðar við þrengingu og nýja gangbraut á Vogabraut fyrir framan Fjölbrautaskóla Vesturlands, þar sem gangbraut og stígur liggja. Umsvifin munu valda hávaða og rykmengun og tímabundinni truflun á umferð og á bílastæðum og er fólk vinsamlegast beðið um að nota hjáleiðir eða koma gangandi/á hjóli ef kostur…Lesa meira

true

Tóku þátt í sumarbingói í Dölum

Héraðsbókasafn Dalasýslu stóð fyrir lestrarátaki yfir sumarið í þriðja sinn. Gefin voru út þrjú bingóspjöld fyrir mismunandi aldur þ.e. frá 5-7 ára, 8-9 ára og 10-12 ára. Þátttakendur sóttu spjöldin á bókasafnið fyrir sumarlokun en á hverju spjaldi voru nokkrir reitir sem lýstu aðstæðum eða athöfn sem átti að framkvæma á meðan lestri stóð. Fram…Lesa meira

true

Sjóvá stækkar við sig á Akranesi

Tryggingafélagið Sjóvá flytur skrifstofu sína á Akranesi á morgun frá Þjóðbraut 1 og að Smiðjuvöllum 28. „Við stækkum við okkur og höfum opið lengur á Akranesi,“ segir í tilkynningu. „Föstudaginn 11. október flytur starfsemi okkar á Akranesi í nýtt og stærra húsnæði að Smiðjuvöllum 28. Við lengjum opnunartímann og verðum nú með opið fyrir komur…Lesa meira