
Þjálfarateymi ÍA, þeir Jón Þór Hauksson og Dean Martin aðstoðarþjálfari. Ljósm. vaks
Jón Þór semur við ÍA til þriggja ára
Knattspyrnufélag ÍA hefur tilkynnt að félagið hafi framlengt samning sinn við Jón Þór Hauksson, þjálfara Skagamanna í Bestu deild karla, til næstu þriggja ára. Jón Þór er á sínu þriðja tímabili sem þjálfari liðsins. ÍA féll úr Bestu deildinni árið 2022 en vann Lengjudeildina 2023 og kom sér aftur upp í deild þeirra bestu. Sem nýliði er ÍA núna í 5. sæti og á möguleika á Evrópusæti þegar tvær umferðir eru eftir af Íslandsmótinu.