
Krakkarnir í óða önn að taka upp kartöflurnar. Ljósm. Brekkó
Fjórði bekkur í Brekkó fór í kartöfluleit
Á Byggðasafninu í Görðum á Akranesi er lítill kartöflugarður við hliðina á húsinu Söndum á safnasvæðinu sem Brekkubæjarskóli hefur til afnota fyrir kartöflubændur í 3. og 4. bekk skólans. Fram kemur á FB síðu skólans að á vorin fara sumsé krakkarnir í 3. bekk og setja niður kartöflur og mæta svo aftur að hausti sem fjórðu bekkingar og ná í uppskeruna. 4. bekkur fór einmitt á dögunum og tók upp kartöflurnar sínar. Uppskeran var með miklum ágætum og þegar allar voru komnar upp úr moldinni þurfti að vigta þær og skipta jafnt á milli krakkanna. Fékk hver og einn nemandi poka í hönd til að taka með sér heim í soðið. Virkilega skemmtilegt verkefni og krakkarnir voru kátir með uppskeruna.