
Þessir kátu krakkar sóttu verðlaunin sín. Ljósm. dalir.is
Tóku þátt í sumarbingói í Dölum
Héraðsbókasafn Dalasýslu stóð fyrir lestrarátaki yfir sumarið í þriðja sinn. Gefin voru út þrjú bingóspjöld fyrir mismunandi aldur þ.e. frá 5-7 ára, 8-9 ára og 10-12 ára. Þátttakendur sóttu spjöldin á bókasafnið fyrir sumarlokun en á hverju spjaldi voru nokkrir reitir sem lýstu aðstæðum eða athöfn sem átti að framkvæma á meðan lestri stóð.