
Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra ásamt fulltrúum landshlutasamtaka sveitarfélaga. Ljósm. Stjórnarráðið
Samningar um svæðisbundin farsældarráð
Undirritaður hefur verið samningur milli mennta- og barnamálaráðherra og sjö landshlutasamtaka sveitarfélaga um ráðningu verkefnisstjóra sem leiða munu undirbúning að stofnun svæðisbundins farsældarráðs í hverjum landshluta fyrir sig. Með samningnum hafa öll sveitarfélög landsins skuldbundið sig til þess að hefja vinnu við að hrinda 5. grein laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna í framkvæmd. Markmiðið er að börn og foreldrar geti fengið aðgang að samþættri þjónustu við hæfi, án hindrana. Það voru reyndar Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi sem riðu á vaðið síðastliðið vor og skrifuðu undir fyrsta samninginn. Hefur Bára Daðadóttir nú verið ráðin sem verkefnisstjóri farsældarmála hjá SSV.