
Landsbjörg tekur í dag formlega á móti nýrri Björg sem fer svo í Rif
Í dag klukkan 11 verður Björgun 24, alþjóðleg ráðstefna Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem haldin er annað hvert ár, sett í Silfurbergi í Hörpu. Við það tilefni verður nýjasta björgunarskip Landsbjargar, Björg, sem verður staðsett í Rifi, afhent félaginu formlega og tilkynnt um áframhald endurnýjunar björgunarskipaflota félagsins. Ráðstefnunni verður síðan fram haldið til sunnudags.
Á sunnudaginn verður hins vegar nýrri Björg siglt vestur og verður móttaka í Rifi klukkan 18. Þar gefst almenningi kostur á að skoða skipið. Ný Björg kostaði 324 milljónir króna. Íslenska ríkið greiðir helming kaupverðs líkt og með fyrri björgunarskip sem komið hafa á undanförnum árum. Landsbjörg greiðir fjórðung og Lífsbjörg í Snæfellsbæ 81 milljón króna. Björgunarsveitinni Lífsbjörgu hefur gengið vel að safna fyrir sínum hlut kaupverðsins en þó er því verkefni ekki lokið. Borist hafa framlög frá félögum á Snæfellsnesi, fyrirtækjum og öðrum velunnurum sveitarinnar. Lífsbjörg hefur einnig sjálf staðið fyrir happdrætti og aflað tekna í björgunarbátasjóð sinn. Áhugasamir sem vilja styrkja sveitina í þessu mikilvæga verkefni geta lagt inn á reikning: 0190-15-370480 og kennitala: 480399-3159.