
Fjármálaráðherra endurnýjar þjóðlendukröfur í eyjar og sker
Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra hefur fyrir hönd íslenska ríkisins afhent óbyggðanefnd endurskoðaðar þjóðlendukröfur vegna eyja og skerja umhverfis landið. Kröfulýsingarnar og upplýsingar um málsmeðferðina er að finna á vefsíðu óbyggðanefndar. Þar er m.a. að finna samantekt lögmanna ríkisins um endurskoðunina. Einnig hefur verið sett upp kortasjá um kröfurnar. Í henni er grá þekja yfir svæðum sem eru undanskilin kröfugerð ríkisins en blár borði er utan um eyjar og sker sem kröfur ríkisins taka til. Kortasjáin byggist m.a. á bestu fyrirliggjandi upplýsingum um fjörumörk en í kröfugerð ríkisins er gerður fyrirvari um að ekki sé útilokað að stórstraumsfjara nái lengra og að viðbótarupplýsingar þar að lútandi kunni að hafa áhrif á afmörkun, sbr. nánari upplýsingar á vefsíðu óbyggðanefndar.