Fréttir

true

Mun gefa kost á sér að nýju

Rætt við Teit Björn Einarsson alþingismann Kosið verður til Alþingis á næsta ári. Tæknilega séð lýkur kjörtímabilinu næsta haust en margir eru þeirrar skoðunar að það henti betur hér á landi að kjósa að vori, eins og tíðkaðist áður fyrr. Um það er forystufólk í sitjandi ríkisstjórn að vísu ekki á einu máli, en Svandís…Lesa meira

true

Byggðastofnun eykur fjárframlög til Brothættra byggða

Stjórn Byggðastofnunar samþykkti á fundi sínum 26. september síðastliðinn að veita 135 milljóna króna viðbótarfjárframlagi inn í verkefnið Brothættar byggðir. Það er gert til að auka viðspyrnu í byggðarlögum sem þykja vera í vörn. Framlagið skiptist á þrjú ár, 2025-2027. Viðbótin verður nýtt til þess að fjölga þátttökubyggðarlögum, lengja gildistíma nýrra samninga og auka þannig…Lesa meira

true

Truflun á umferð við Garðabraut

Vegna nýrra heimtauga fyrir fjölbýlishúsið við Garðabraut 1 á Akranesi er gatan þveruð um þessar mundir vegna lagnavinnu. Garðabraut verður því lokuð fyrir framan Garðabraut 1 til mánudagsins 14. október en hjáleið er um Skessuhornsbraut. Í sömu aðgerð verður einnig horft til framtíðar og lagðir stofnar hitaveitu og rafmagns sem munu nýtast fyrir frekari framkvæmdir…Lesa meira

true

Veik von um Evrópusæti hjá ÍA eftir tap gegn Stjörnunni

Stjarnan og ÍA áttust við í annarri umferð efri helmings Bestu deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var viðureignin á Samsungvellinum í Garðabæ. Aðstæður til að leika knattspyrnu voru með besta móti, kalt en lítill vindur og stemningin afar góð hjá þeim rúmlega sex hundruð áhorfendum sem létu vel í sér heyra nánast allan…Lesa meira

true

Lögreglan á Vesturlandi fær viðurkenningu

Á ársfundi Orkustofnunar, sem haldinn var síðastliðinn fimmtudag í Hofi á Akureyri, var hvatakerfi um orkuskipti bifreiða ríkisstofnana hleypt af stokkunum. Lögreglan á Vesturlandi fékk á ársfundinum viðurkenningu fyrir árangur í orkuskiptum bifreiðaflota embættisins. Á vefsíðu Lögreglunnar á Vesturlandi segir: „Við fengum ,,Silfurdekkið“ sem er fyrir að vera komin upp fyrir 60% hreinorku en embættið…Lesa meira

true

Árvekniátak Krabbameinsfélagsins hafið – Bleika slaufan komin í sölu

Í dag, þriðjudaginn, 1. október hefst árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins, Bleika slaufan. Í ár beinir Krabbameinsfélagið athyglinni að aðstandendum undir slagorðinu „Þú breytir öllu.“  Slaufan í ár er fagurbleikur og skínandi blómakrans fléttaður úr þremur nýútsprungnum blómum. Kransinn samanstendur af vafningum sem vefjast um hvern annan og tákna þannig þá umhyggju og stuðning sem við…Lesa meira

true

Auglýsa styrki vegna verslunar í dreifbýli

Innviðaráðherra auglýsir eftir umsóknum um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036 vegna „Verslun í dreifbýli.“ Allt að 17 milljónum króna verður veitt vegna ársins 2025. Umsækjendur skulu taka mið af úthlutunarreglum innviðaráðherra og auglýsingu um styrkina. Markmið aðgerðarinnar er að styðja við rekstur dagvöruverslana í minni byggðarlögum fjarri stórum byggðakjörnum…Lesa meira

true

Gistináttum fækkaði í landshlutanum

Gistinætur á hótelum í ágúst voru rúmlega 608.700 á landsvísu, eða um 2,3% fleiri en á sama tíma árið 2023 þegar þær voru 595.100. Þetta kemur fram í samantekt Hagstofu Íslands. Mest fjölgaði gistináttum á Suðurlandi (5,6%) og á höfuðborgarsvæðinu (4,9%). Minni aukning var á Norðurlandi eða 2,8%. Samdráttur var í öðrum landshlutum þar sem…Lesa meira

true

Ný Björg komin til landsins

Upp úr hádegi í dag var Björg, nýtt björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, hífð frá borði Brúarfoss, skipi Eimskipafélagsins í Sundahöfn. Björg er fjórða skipið í nýsmíðaverkefni Landsbjargar og mun leysa af hólmi skip með sama nafni í rekstri Lífsbjargar í Rifi á Snæfellsnesi. Það skip var smíðað árið 1988 og er því orðið 36 ára gamalt.…Lesa meira

true

Alvarlegar athugasemdir koma fram í skýrslu um barnaverndarþjónustu

Athugun Gæða- og eftirlitsstofnunar (GEV) velferðarmála á gæðum barnaverndarþjónustu í sveitarfélaginu Borgarbyggð leiddi m.a. í ljós óskýra verkferla, skort á leiðbeiningum til starfsfólks og brot gegn málsmeðferðarreglum barnaverndarlaga. Þetta kemur fram í skýrslu sem birt var á vef GEV í dag. GEV tók ákvörðun í mars 2023 um að hefja frumkvæðiseftirlit í formi athugunar á…Lesa meira