Fréttir
Hafþór Ingi með viðurkenninguna. Ljósm. logreglan.is

Lögreglan á Vesturlandi fær viðurkenningu

Á ársfundi Orkustofnunar, sem haldinn var síðastliðinn fimmtudag í Hofi á Akureyri, var hvatakerfi um orkuskipti bifreiða ríkisstofnana hleypt af stokkunum. Lögreglan á Vesturlandi fékk á ársfundinum viðurkenningu fyrir árangur í orkuskiptum bifreiðaflota embættisins. Á vefsíðu Lögreglunnar á Vesturlandi segir: „Við fengum ,,Silfurdekkið“ sem er fyrir að vera komin upp fyrir 60% hreinorku en embættið er nú að aka um 80% á hreinorku og því stutt í ,,Gulldekkið“ sem veitt er fyrir 90% árangur.“

Lögreglan á Vesturlandi fær viðurkenningu - Skessuhorn